Æh... ég er svo aum.. uhuuu.. aum aum aum... Það brakar alls staðar í mér og ég get mig varla hreyft! Harðsperrurnar eru að drepa mig! Það er varla að ég nenni í matinn á eftir því ég held ég geti ekki labbað þangað! Þið sem brosið núna skuluð sko fá að vita að þetta er enginn aumingjaskapur hjá mér, þessi vika hefur nefnilega verið sjúkt erfið! MEST erfið.. ég veit varla hvar ég á að byrja?!
Á miðvikudaginn þegar við vorum búin að stunda okkar íþróttir, sveitt og sæl, var haldið skemmtihlaup í skóginum, ég fatta ekki samhengið í þessu orði skemmtihlaup, því það er sko EKKERT skemmtilegt við hlaup!
Við hjóluðum ca. 4 km á staðinn og þar byrjaði hlaupið. Okkur var skipt niður í 4 manna lið. Hvert lið fékk kort, blöð og blýant. Þetta virkaði þannig að 2 og 2 úr liðinu áttu að hlaupa á ákveðinn stað í skóginum, finna spurningu, hlaupa til baka og svara henni á meðan hinir 2 hlupu út í skóginn. Hlauplengdin var eitthvað um 6 km allt í allt Ég lenti í liði með Atla, Ívari og Elínu, svona tíbískt Íslendingalið, sem var ekki svo sniðugt því erum nú ekki það sleip í dönskunni. Allavega, þá tókum við þetta hlaup alvarlega, því við vildum jú öll vinna hina! Asnarnir við, fórum á alla staðina og svöruðum öllum spurningunum eins vel og við gátum. Við vorum svona 30-40 mín lengur en allir og skildum ekkert af hverju við vorum svona sjúkt lengi. Kom það ekki á daginn að hinir höfðu bara hætt! HÆTT! Enginn af okkur hafði s.s. náð þeim mikilvæga punkti að við mættum bara fara heim. Maður er orðinn svo vanur því að segja bara já-já og kinka kolli, því það er jú hundleiðinlegt að vera trítaður sem einhver stubito. Ég hefði samt frekar viljað vera stubito þarna og komast heim, heldur en að hlaupa eins og asni! Það versta við þetta hlaup er það að niðurstöðurnar eru ekki ennþá komnar! Það var ekkert lið sem venn þannig að þetta var algerlega ganglaust og handónýtt hlaup!!!
/ég bíð samt ennþá og vona að úrlausnirnar berist í hús...
Fimmtudagurinn var mesta klikkun sem ég hef upplifað held ég! Ég segi nú bara Flóafár hvað!! Við erum öll í hópum með umsjónarkennara og þessi dagur var notaður til þess að þjappa hópunum saman. Mitt lið var náttúrulega langflottasta liðið því við vorum SVARTA liðið! Allir hinir þurftu að fara í einhverja svakalega búninga, en því stríðsmáluðum okkur bara í framan! Jæja, þessi brjálaði dagur byrjaði þannig að við gerðum hjólin okkar ready snemma um morguninn, og svo byrjaði klikkunin! Þennan dag var ratleikur um allt Aarhus, á hjólum! Þið sem ekki hafið komið hingað vitið ábyggilega ekki að Århus er ekkert annað en brekkur, þær eru það svakalegar að það þyrfti að hæðamerkja þær á landakorti, því ég held að þær fari hátt upp í Himnabjargið!!! Það voru aðilar á einhverjum 28 stöðum út um allan bæ og þeir voru með alls konar þrautir sem við þurftum að leysa á staðnum eða um kvöldið. Ef við héldum að við gætum gert hlutina skrifuðum við “Ja” á svarblaðið en annars “Nej”. Ef við höfðum skrifað Ja og gátum leyst þrautina fengum við 10 stig en ef við gátum það ekki fengum við -6. Nej, og þá stóðum við á núlli.(n.k. eins og háskólinn ;p ). Þrautirnar voru sjúklegar sko t.d. þurftum við að mæla ummálið á strætó númer 11 með IKEA málbandi, einn aðili þurfti að sippa 150 sinnum í röð án þess að ruglast á innan við 2 mín, einn aðili átti að gera 50 armbeygjur á einhverri einni mínútu, allur hópurinn þurfti að syngja danska sálma á göngugötunni og betla pening, við fengum mikinn pening, því eymingjas fólkið hélt að það væri að styrkja fólk í Afríku...... og meir og meir.... Um leið og við vorum að leysa þetta allt saman þurftum við líka að leysa ráðgátu á þýsku, og ég hjálpaði nú súper mikið við það, ójá... Uppáhalds þrautin mín var hins vegar PRJÓNIÐ! Við fengum dokku og tröllaprjóna í byrjun dagsins og það lið vann þrautina sem náði að prjóna lengsta trefilinn á hlaupunum. Allir danirnir fengu sjokk þegar þessi þraut kom í ljós því danir kunna ekki að prjóna! Þetta var því það eina sem ég gerði allan daginn, að prjóna á öllum stoppunum niðri í bæ! Í lok dagsins var treflamæling og þá sá ég að það voru eiginlega allir Íslendingarnir sem höfðu verið í þessari merku þraut allan daginn! Ég vil endilega þakka Siggu saumó og ömmu því ég vann þessa merku prjónakeppni, þurfti reyndar að svindla með því að láta konu í búð byrja fyrir mig og svo kenndi gömul kona á bókasafninu mér að slá af, en hva, þetta veit enginn....
Allavega, ég hef aldrei verið jafn þreytt og eftir þetta hlaup! Ég sem er nú alltaf þreytt! Einn gaurinn í mínu liði var með metramæli og í lok dagsins vorum við búin með um 30 km!!!! Jáh, ég hefði getað hjólað á Selfoss!!! En vitið þið hvað, við vorum í 2. sæti!!! Þegar Færeyingur, Íslendingur, Norðmaður og 5stk Dani koma saman, þá er gaman!
FÖSTUDAGURINN... Ohhohhhohhhhhhhh! Ég stal þessari snilldar færslu af blogsíðu tveggja meðlima MÍ... Ég hefði ekki getað sagt þetta betur ég sjálf, þið verðið endilega að lesa þetta!
http://www.burnalf.blogspot.com/
---
Hoppe ud af en flyvemaskine, KÆMPESTORT blåmark, (som vi tager et billede af snart) ... Alt for meget bevægelse... udeløb, cykleturer (som man skulle måske hellere kalde for cykelmarathon), lidt øldrikkelse.... Danser Danser min dukke....VI
ROKKER DANMARK, SATANNEDEME...og lille bitte tømmermænd...
For helvede da...
Den første fest var som sagt i går aftes.... hvor der var meget danset og siddet i en flyvemaskine... jeg sad på Buisness class hvor man fik bara såh meget af rødvin (med tilhørende rødvinstænder som lilja kunne meget godt lide)... vindruger, sjokolade ofl. ofl. ... stakkels Lil var kun på vej til Ibitza ... og sad bare med 2.classe mennesker.... stakkels pigen... Og så kom der nogen terrorister og der var to piloter som snakkede Norsk... ooog så blev vi nødt til at forlade flyvemaskinen fordi de norske piloterne ("For fan jeg flyver aldrig med Breezer.. det er den første gang... jeg flyver normalt med smirnoff...") var så fulde at vi måtte nødelande.... og så skulle vi hoppe på sådan en madrads med en condom over hovedet... og lilja fik et kæmpe blåt mark på benet fordi der.... nej jeg ved ikke hvorfor... der er ingen der ved...OG SÅ SKULLE DER DANSES!!! og vi dansede natten væk i en stor ring.. og så skulle man sige B I N G O ...
DUUUUT
hohohoho
og så mødtes islændinge mafian inde på værelse 57 og drak lidt øl og hvidvin... og så var der Diskotek! .... og nu skal I høre jer islandske drenge... De danske drenge er meget dygtige til at spørge om man har lyst til at danse.. og så tager man simpelthen ud på dansgulved og danser ring efter ring efter ring... ja det må man sige, de danske drenge ved precis hvordan man skal danse ordentligt... ikke sådan noget med bootie dans eller at stå generte i et hjørne... nej nu skal der danses.... og det har jeg så forklaret til de islandske drenge der er her i Århus.. Agust og Atli... og de begyndte med det samme at prøve at få pigerne til at danse...GODT GÅET DRENGE!!
---
Þetta var s.s. það sem gerðist þetta kvöld. Við fórum í flugvél og svo brotlenti hún, terroristasprengjur og fleira... SNILLD!!!
/Sorry fólk, aðallega mamma, hvað færslan kemur seint, en ég var bara að ná netkortinu af Ívari, sem er búinn að vera með það í fleiri, fleiri daga.. Ég verð svo að fara að sofa, því ég er nefnilega að fara í Pilates og klettaklifur á morgun!!! Jáh Sibba mín, ég er survivor!